Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 13:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
U17 vann stórsigur á Serbíu í lokaleik og heldur sæti sínu
Kvenaboltinn
Byrjunarliðið í dag
Byrjunarliðið í dag
Mynd: KSÍ
Mynd: KSÍ
Ísland 5 - 0 Serbía
1-0 Sigrún Ísfold Valsdóttir ('29)
2-0 Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('39)
3-0 Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('45+2)
4-0 Kara Guðmundsdóttir ('65)
5-0 Elísa Birta Káradóttir ('71)

U17 kvenna vann frábæran 5-0 sigur á Serbíu í síðasta leik sínum í seinni umferð undankeppni EM 2026. Fyrir leik var ljóst að íslenska liðið kæmist ekki á EM í sumar, en með sigrinum tryggði Ísland sér áframhaldandi sæti í A deild undankeppninnar fyrir fyrstu umferð undankeppni EM 2027.

Fanney Lísa Jóhannesdóttir skoraði tvö mörk og þær Sigrún Ísfold Valsdóttir (Arna Ísold Stefánsdóttir skráð hjá KSÍ), Kara Guðmundsdóttir og Elísa Birta Káradóttir skoruðu sitt markið hver.

Fyrsta mark leiksins skoraði Sigrún Ísold eftir klafs í teignum sem myndaðist eftir hornspyrnu Bríetar Fjólu Bjarnadóttur, Fanney Lísa skoraði næsta mark þegar hún fylgdi á eftir skoti Elísu Birtu tíu mínútum eftir fyrsta markið. Fanney Lísa skoraði svo þriðja markið þegar hún nýtti sér slaka sendingu markmanns Serbíu, Fanney var ein gegn markmanni frá vítateigslínu og þrumaði boltanum í slána og inn. Varamaðurinn Kara skoraði svo fjórða markið með góðu skoti úr teignum eftir hornspyrnu Bríetar Fjólu og Elísa Birta skoraði svo fimmta mark Íslands eftir að fyrirgjöf hrökk af Köru og fyrir fætur Elísu sem skoraði með skoti af stuttu færi.

Frakkland vann 3-1 sigur á Austurríki á sama tíma og tryggði sér með því sæti í lokakeppni EM 2026. Ísland tapaði með eins marks mun gegn bæði Austurríki og Frakklandi í fyrstu tveimur leikjum riðilsins. Riðillinn var spilaður í Serbíu.
Athugasemdir
banner
banner