Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 19:28
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: McTominay tryggði fjórða sigurinn í röð
Mynd: EPA
Cagliari 0 - 1 Napoli
0-1 Scott McTominay ('2 )

Ítalíumeistarar Napoli unnu fjórða deildarleikinn sinn í röð þegar þeir heimsóttu Cagliari í dag.

Scott McTominay skoraði snemma leiks þegar boltinn datt fyrir hann eftir mikinn atgang innan vítateigs í kjölfar hornspyrnu.

Gestirnir frá Napólí voru sterkari aðilinn en Elia Caprile stóð sig vel á milli stanga heimamanna og varði nokkrum sinnum meistaralega.

Heimamenn áttu sínar rispur og komust nokkrum sinnum í góðar stöður en tókst ekki að skapa sérlega mikla ógn, svo lokatölur urðu 0-1.

Napoli er í öðru sæti með 62 stig eftir 30 umferðir - sex stigum á eftir toppliði Inter sem á leik til góða. Inter er búið að misstíga sig síðustu tvo leiki í röð en fyrirliðinn Lautaro Martínez er að snúa aftur úr meiðslum ásamt Hakan Calhanoglu.

Þeir verða þó ekki með í leik Inter gegn Alberti Guðmundssyni og félögum í Fiorentina sem fer fram á sunnudagskvöldið.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 22 2 5 65 23 +42 68
2 Napoli 30 19 5 6 46 30 +16 62
3 Milan 29 17 9 3 44 21 +23 60
4 Como 29 15 9 5 48 22 +26 54
5 Juventus 29 15 8 6 51 28 +23 53
6 Roma 29 16 3 10 39 23 +16 51
7 Atalanta 29 12 11 6 40 27 +13 47
8 Bologna 29 12 6 11 38 34 +4 42
9 Lazio 29 10 10 9 29 28 +1 40
10 Sassuolo 29 11 5 13 35 39 -4 38
11 Udinese 30 10 7 13 33 42 -9 37
12 Genoa 30 8 10 12 36 40 -4 34
13 Parma 29 8 10 11 21 36 -15 34
14 Torino 29 9 6 14 32 50 -18 33
15 Cagliari 30 7 9 14 31 42 -11 30
16 Fiorentina 29 6 10 13 34 43 -9 28
17 Lecce 29 7 6 16 21 39 -18 27
18 Cremonese 29 5 9 15 23 44 -21 24
19 Pisa 29 2 12 15 23 49 -26 18
20 Verona 29 3 9 17 22 51 -29 18
Athugasemdir
banner