Brasilíski miðjumaðurinn Bruno Guimaraes er gríðarlega eftirsóttur af stórveldum evrópska fótboltans.
Hann hefur verið sterklega orðaður við Arsenal, Real Madrid og Manchester United en Eddie Howe þjálfari Newcastle vill ekki missa þennan lykilmann úr liðinu sínu.
Bruno er fyrirliði Newcastle og með rétt rúmlega tvö ár eftir af samningi sínum við félagið.
„Ég veit ekki hvernig ég á að svara þessu, þetta er sóun á orkunni minni," svaraði Howe þegar hann var spurður út í orðróma sem sögðu Bruno vera á leið frá Newcastle.
„Bruno er fyrirliðinn okkar og er með fulla einbeitingu að því að gera vel fyrir Newcastle. Hann er að glíma við meiðsli þessa stundina og er bara að hugsa um endurhæfinguna til að komast aftur á völlinn sem fyrst. Hann er hamingjusamur hérna."
Howe fékk spurninguna á fréttamannafundi fyrir hatrammann nágrannaslag Newcastle gegn Sunderland sem hefst í hádeginu á morgun, nokkrum dögum eftir stórt tap gegn Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Newcastle er úr leik í Evrópu eftir tapið gegn Spánarmeisturunum, auk þess að vera heilum sex stigum frá evrópubaráttu ensku úrvalsdeildarinnar með átta umferðir eftir óspilaðar.
Einhverjir slúðurmiðlar á Englandi greina frá því að United sé svo gott sem búið að ná samkomulagi við Newcastle um kaupverð sem hljóðar upp á tæpar 70 milljónir evra.
19.03.2026 10:15
Annar Bruno til Man Utd?
Athugasemdir



