Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Chelsea strax tilbúið að hlusta á tilboð
Liam Delap.
Liam Delap.
Mynd: EPA
Liam Delap var keyptur til Chelsea síðasta sumar en hefur ekki náð að heilla á þessu tímabilinu.

Samkvæmt TalkSPORT er Lundúnafélagið strax tilbúið að hlusta á tilboð í hann.

Hinn 22 ára gamli Delap hefur aðeins byrjað tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni á árinu og hefur einungis skorað tvö mörk í öllum keppnum á tímabilinu.

Delap fundaði með Newcastle síðasta sumar og talið er að Newcastle muni reyna aftur við hann í sumar.

Delap, sem vakti athygli með Ipswich á síðasta tímabili, er metinn á 40 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner