Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir er orðin ein af fyrirliðum sænska félagsins Hammarby þrátt fyrir að hafa bara komið þangað fyrr á þessu ári.
Guðrún þekkir mjög til í Svíþjóð en hún fór til Djurgården frá Breiðabliki fyrir tímabilið 2019, var þar fyrstu árin í Svíþjóð áður en hún fór til Rosengård þar sem hún varð sænskur meistari í þrígang. Síðasta sumar fór hún svo til Portúgals en stoppaði stutt þar.

Hammarby endaði í 2. sæti deildarinnar á síðasta tímabili og vann bikarinn. William Strömberg, þjálfari Hammarby, er greinilega ánægður með Guðrúnu því hann hefur sett hana í fyrirliðahópinn ásamt þremur öðrum leikmönnum.
„Ég sagði þeim að þær væru fjórir ólíkir karakterar sem allar sækjast eftir því að vera leiðtogar. Ég trúi því sterklega að þessi blanda geti skilað liðinu miklu, með þær í leiðtogahlutverkum," sagði Strömberg við sænska fjölmiðla.
„Með fyrirliðabandið færðu ákveðið umboð. Þá geturðu líka tekið á þig ákveðna ábyrgð. Við þurfum að hafa bæði óformlega og formlega leiðtoga sem ýta menningunni, umhverfinu og æfingavinnunni okkar áfram. Í því samhengi eru þessir fjórir leikmenn góðar fyrirmyndir,“ sagði Strömberg jafnframt.
Athugasemdir