Villarreal 3 - 1 Real Sociedad
1-0 Gerard Moreno ('7 )
2-0 Georges Mikautadze ('15 )
3-0 Nicolas Pepe ('23 )
3-1 Luka Sucic ('47 )
1-0 Gerard Moreno ('7 )
2-0 Georges Mikautadze ('15 )
3-0 Nicolas Pepe ('23 )
3-1 Luka Sucic ('47 )
Villarreal tók á móti Real Sociedad í fyrsta leik helgarinnar í La Liga, efstu deild spænska boltans.
Heimamenn byrjuðu fyrri hálfleikinn af miklum krafti og náðu forystunni eftir vel útfærða hornspyrnu snemma leiks. Gerard Moreno skallaði boltann í netið og var nálægt því að skora annað mark skömmu síðar eftir misheppnaða hápressu frá Sociedad, en mistókst ætlunarverkið. Georges Mikautadze var þó fljótur að átta sig og skoraði úr frákastinu til að tvöfalda forystuna.
Það leið ekki á löngu þar til Nicolas Pépé, næstdýrasti leikmaður í sögu Arsenal, setti þriðja mark heimamanna eftir skyndisókn. Pépé gerði mjög vel að spretta upp hálfan völlinn með boltann áður en hann skoraði.
Luka Sucic minnkaði muninn fyrir Sociedad í upphafi síðari hálfleiks en heimamenn voru áfram sterkari aðilinn og komust nokkrum sinnum nálægt því að bæta við forystuna.
Orri Steinn Óskarsson kom inn af bekknum á 68. mínútu en tókst ekki að minnka muninn frekar, svo lokatölur urðu 3-1.
Villarreal siglir áfram lygnan sjó í meistaradeildarsæti á meðan Sociedad er þremur stigum frá evrópusæti.
Athugasemdir



