Það hefur verið talsverð umræða um að það mætti betrumbæta undirbúningstímabilið á Íslandi. Í A-deild Lengjubikars karla taka menn mótinu misalvarlega og lið í Bestu deildinni mæta ekki alltaf með sín sterkustu lið til leiks. Síðustu ár, bæði í Reykjavíkurmótinu og Lengjubikarnum, hafa þjálfarar viljandi stillt upp ólöglegum leikmönnum og tapað því leiknum sjálfkrafa - þótt minna hafi verið um það í ár.
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, birti færslu á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hann lagði til stórar breytingar. Hann vill leggja niður Lengjubikarinn, sem er stærsta mótið á undirbúningstímabilinu, og þess í stað spila bikarleiki í febrúar og mars. Sævar leggur til að 32-liða úrslitum bikarkeppninnar verði breytt í riðlakeppni; átta fjögurra liða riðla, þar sem öll lið spila þrjá leiki. Efstu tvö liðin í hverjum riðli færu svo áfram í 16-liða úrslitin.
Þannig er fyrirkomulagið í Svíþjóð. Þar fara lið í forkeppni árið á undan og spila um að komast í riðlakeppnina. Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, ræddi sömu pælingu í Íþróttavikunni á 433 í síðustu viku.
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, birti færslu á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hann lagði til stórar breytingar. Hann vill leggja niður Lengjubikarinn, sem er stærsta mótið á undirbúningstímabilinu, og þess í stað spila bikarleiki í febrúar og mars. Sævar leggur til að 32-liða úrslitum bikarkeppninnar verði breytt í riðlakeppni; átta fjögurra liða riðla, þar sem öll lið spila þrjá leiki. Efstu tvö liðin í hverjum riðli færu svo áfram í 16-liða úrslitin.
Þannig er fyrirkomulagið í Svíþjóð. Þar fara lið í forkeppni árið á undan og spila um að komast í riðlakeppnina. Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, ræddi sömu pælingu í Íþróttavikunni á 433 í síðustu viku.
Færsla Sævars
Mikil og neikvæð umræða búin að vera um íslenskan fótbolta og það undirbúningstímabil sem er í gangi. Talað um að skemma Lengjubikarinn, bikarinn búinn að missa sjarma sinn hjá liðum í neðri deildum, liðin eru að fá lélega undirbúningsleiki fyrir tímabil o.s.frv. Svona er tónninn í fótboltanum korter í mót, en hvað með lausnir.
Ég hef nefnt ákveðnar breytingar á bikarnum frá því Bestu deildinni var breytt á sínum tíma og finnst að það yrði að uppfæra bikarinn samhliða því. Lausnin er að mínu mati að hrista vel upp í þessu móta fyrirkomulagi. Leggjum niður Lengjubikarinn, spilum riðla í bikarnum frá ca 15 feb-15 mars. Þar eru 4 helgar og mótið spilast í átta, fjögurra liða riðlum (32 liða úrslit). Hvert félag fær 3 leiki sem verða hörku leikir, í hverri umferð er að minnsta kosti 1 stór leikur sem gerir þetta TV vænt og hægt að halda uppgjörsþátt þar sem er farið yfir mörkin úr hverri umferð.
Upp úr þessum riðlum fara svo 16 lið í gamla góðu úrsláttakeppnina. Í dag erum við að byrja forkeppni í bikar um miðjan mars hjá félögum úr neðri deildum sem þurfa jafnvel að spila þessa leiki langt frá sinni heimabyggð þrátt fyrir að hafa fengið heimaleik. Eðlilegra væri að spila þessa leiki í forkeppni um sumartímann og þú reynir að vinna þér inn réttinn til að spila í þessum riðlum árið eftir. Þannig að leikur eins og Þróttur Vogum vs Grótta sé spilaður í Vogunum um sumar við frábærar aðstæður en ekki í skítakulda á Álftanesi um miðjan mars.
Þá reyna einmitt slík félög eins og Þróttur V, Grótta ofl að vinna sér inn þann rétt að spila í riðlunum feb-mars árið eftir, fá þar leiki við „stóru“ félögin og hafa eitthvað að stefna á. Núna eru þessir leikir einskis virði, spilaðir við lélegar aðstæður og mörg af þessum félögum ekki einu sinni komin með það lið sem á að spila á yfir sumarið. Það væri miklu skemmtilegra að spila slíka leiki í júní-júlí við topp aðstæður og reyna að vinna sér inn réttinn til að spila í riðlunum yfir veturinn.
Kostirnir við þetta fyrirkomulag
• TV-vænt, ert alltaf með alvöru leik í hverri umferð í riðlinum.
• Líklegt að sterkustu liðin fari í 16 liða úrslit sem þýðir að styrktaraðili (MS) er líklegri að koma að slíku móti.
• Þau félög sem byrja í forkeppni, fá leiki yfir sumartíma á sínum heimavelli í stað þess að spila á einhverjum völlum um miðjan mars með eitthvað lið.
• Alvöru leikir á „pre-season“ því félag mun ekki mæta með „varaliðið“ sitt í þessa leiki því á endanum er Evrópusæti undir.
• Félög geta raðað sér á 3 leikdaga af 4 á þessu tímabili og náð samt að fara í æfingarferð án þess að skemma mótið.
• Stórir leikir fyrir félög úr neðri deildum sem vinna sér inn þátttöku í riðlunum.
• Auðveldara að klára 32 liða úrslitin þarna heldur en að setja leikdag eftir að Íslandsmótið er búið.
• Lengra tímabil með alvöru keppnisleikjum.
• Leikmenn komnir með leikheimild er bikarinn byrjar, ekki eins og þetta er í dag þegar Lengjubikarinn byrjar.
• Meiri umgjörð um þessar bikarleiki heldur en er í dag.
• Þjálfarar fá alvöru leiki og leiki hjá andstæðingum sem er hægt að leikgreina og skoða.
Vissulega verða einhverjir gallar líka en alltaf best að horfa á glasið hálf fullt í staðinn fyrir hálf tómt. Þora að gera smá breytingu, því að gera ekki neitt skilar okkur því undirbúningstímabili sem við höfum í dag.
Mín 50 cent inn í þessa umræðu.
Athugasemdir



