Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Fjórum stoðsendingum frá úrvalsdeildarmetinu
Mynd: EPA
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Portúgalski miðjumaðurinn Bruno Fernandes er aðeins fjórum stoðsendingum frá því að jafna stoðsendingamet ensku úrvalsdeildarinnar.

Bruno er búinn að gefa 16 stoðsendingar í 27 deildarleikjum það sem af er tímabils. Hann er aðeins fjórum stoðsendingum frá því að jafna stoðsendingametið sem goðsagnirnar Kevin De Bruyne og Thierry Henry deila.

Portúgalinn knái er búinn að gefa fjórar stoðsendingar í síðustu þremur deildarleikjum og getur því jafnað metið eða jafnvel bætt það ef hann heldur áfram uppteknum hætti. Það eru átta umferðir eftir af leiktíðinni og eiga Rauðu djöflarnir leiki við Bournemouth, Leeds, Chelsea og Brentford framundan.

Þeir heimsækja Bournemouth í kvöld og verður erfitt fyrir Bruno að ná sér í stoðsendingu gegn sterkum andstæðingum sem hafa verið afar öflugir varnarlega upp á síðkastið. Það eru rúmar 250 mínútur síðan lærlingar Andoni Iraola fengu síðast mark á sig og hafa þeir aðeins hleypt einu marki inn í síðustu fjórum leikjum.

Bruno er sem stendur í 9.-12. sæti yfir stoðsendingahæstu leikmenn á einu úrvalsdeildartímabili og vekur það athygli að De Bruyne kemur fjórum sinnum fyrir á listanum. Cesc Fábregas, fyrrum leikmaður Arsenal og Chelsea, kemur tvisvar sinnum fyrir.

Stoðsendingalistinn
1. 02/03 Thierry Henry (Arsenal) - 20
2. 19/20 Kevin De Bruyne (Man City) - 20
3. 15/16 Mesut Özil (Arsenal) - 19
4. 04/05 Frank Lampard (Chelsea) - 18
5. 14/15 Cesc Fábregas (Chelsea) - 18
6. 16/17 Kevin De Bruyne (Man City) - 18
7. 24/25 Mohamed Salah (Liverpool) - 18
8. 07/08 Cesc Fábregas (Arsenal) - 17
9. 17/18 Kevin De Bruyne (Man City) - 16
10. 22/23 Kevin De Bruyne (Man City) - 16
11. 92/93 Eric Cantona (Man Utd) - 16
12. 25/26 Bruno Fernandes (Man Utd) - 16

   16.03.2026 09:00
Rooney: Bruno er besti leikmaður deildarinnar

Athugasemdir
banner