Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 10:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Þetta er sá besti sem maður hefur æft með"
Ivan Kalyuzhnyi.
Ivan Kalyuzhnyi.
Mynd: Keflavík
Ivan Kalyuzhnyi er öflugur miðjumaður sem lék með Keflavík í Bestu deildinni sumarið 2022. Síðan dúkkaði hann upp með úkraínska landsliðinu á Laugardalsvelli í fyrra þar sem hann var á meðal markaskorara í ótrúlegum leik.

Hann var á láni hjá Keflavík frá Oleksandriya, hann kom til Íslands vegna stríðsástandsins í Úkraínu.

Eftir nokkra leiki á Íslandi kom svo kallið frá Kerala Blasters á Indlandi. Keflavík hefði getað haldið Ivan áfram en hann kostaði eina milljón dollara að sögn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar sem þá var þjálfari Keflavíkur.

Rætt var um Ivan í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net í vikunni þar sem Egill Darri Einarsson og Helgi Bergmann Hermannsson, stuðningsmenn Keflavíkur, fóru yfir sviðið fyrir komandi keppnistímabil.

„Ég æfði á tímabili með honum. Þetta er ótrúlegur leikmaður. Hann er sá besti sem maður hefur æft með," sagði Helgi Bergmann, sem er fyrrum markvörður Keflavíkur.

„Ég sá þetta ekki. Ég heyrði bara að það væri kominn úkraínskur maður sem væri að flýja stríð. Við Keflvíkingar gerðum þau mistök að sækja um venjulegt atvinnuleyfi. Þess vegna tók þetta svo langan tíma því hann byrjaði ekki að spila fyrr en um mitt sumar," sagði Egill Darri og bætti við:

„Hann var frábær."

Ivan er í dag 27 ára og er fyrirliði Metalist Kharkiv í úkraínsku úrvalsdeildinni ásamt því að spila með landsliði Úkraínu sem vann Ísland tvisvar sinnum í undankeppni HM á síðasta ári.
Niðurtalningin - Keflvíkingar láta sig dreyma um Forsetabikarinn
Athugasemdir
banner
banner