Guðlaugur Victor Pálsson heldur áfram að standa sig vel með Darmstadt í þýsku B-deildinni.
Guðlaugur, sem hefur verið leikmaður tímabilsins hjá Darmstadt að mati Kicker, skoraði í dag og lagði upp í 4-0 sigri á St. Pauli.
Hann átti stoðsendinguna að fyrsta marki Darmstadt á sjöundu mínútu og skoraði hann það fjórða og síðasta þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma.
Darmstadt er í fimmta sæti eftir sigurinn í dag, sex stigum frá öðru sæti. Tvö efstu lið deildarinnar fara beint upp í þýsku úrvalsdeildina, en liðið í þriðja sæti fer í umspil við liðið sem hafnar í 16. sæti í úrvalsdeildinni.
Rúrik Gíslason var ekki í leikmannahópi Sandhausen sem gerði markalaust jafntefli við Jahn Regensburg á heimavelli. Rúrik hefur verið að glíma við meiðsli, en Sandhausen er í 14. sæti, stutt frá fallsvæðinu.
Athugasemdir