Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 23. maí 2021 10:30
Elvar Geir Magnússon
Lið 5. umferðar - Orrarnir í Fylki og miðverðirnir í KR
Viktor Jónsson er í úrvalsliði umferðarinnar.
Viktor Jónsson er í úrvalsliði umferðarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Júlíus Magnússon í Víkingi.
Júlíus Magnússon í Víkingi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þessi sunnudagur er alveg kjörinn til að panta sér pizzu frá Domino's. Það er einmitt Domino'z sem býður upp á úrvalslið umferðarinnar í Pepsi Max-deild karla.

5. umferð lauk í gær og er aðeins einn leikmaður sem hefur verið valinn áður í úrvalsliðið á þessu tímabili, það er danski sóknarmaðurinn Patrick Pedersen sem reyndist hetja Vals gegn nýliðum Leiknis og skoraði eina mark leiksins á 86. mínútu.

Varnarmennirnir Grétar Snær Gunnarsson og Finnur Tómas Pálmason þóttu bestu leikmenn KR í 2-0 sigri gegn FH í stórleik sem fram fór í gær. Rúnar Kristinsson er þjálfari umferðarinnar.



Tvö lið náðu í sinn fyrsta sigur á tímabilinu. ÍA vann 3-1 útisigur gegn HK í Kórnum en Viktor Jónsson skoraði eitt af mörkum Skagamanna og var valinn maður leiksins. Dino Hodzic, markvörður ÍA, átti líka virkilega flottan leik og er í úrvalsliðinu.

Fylkismenn vöknuðu til lífsins og lögðu Keflavík 4-2 í Árbænum. Orri Hrafn Kjartansson var valinn maður leiksins en hann skoraði tvö mörk. Varnarmaðurinn Orri Sveinn Stefánsson var einnig mikilvægur en hann kom sér líka á blað.

Breiðalik var í fantastuði gegn Stjörnunni og vann 4-0 sigur. Sjálfstraustsleysi hrjáir Garðbæinga og þeir grænu sýndu enga miskunn. Höskuldur Gunnlaugsson lék sem bakvörður og skoraði eitt af mörkunum, hann var valinn maður leiksins. Kristinn Steindórsson braut ísinn í leiknum og er einnig í úrvalsliðinu.

Sjá einnig:
Úrvalslið 4. umferðar
Úrvalslið 3. umferðar
Úrvalslið 2. umferðar
Úrvalslið 1. umferðar

Fjallað er um 5. umferðina í útvarpsþættinum sem má nálgast í spilaranum hér að neðan.
Útvarpsþátturinn - Íslenskt boltahlaðborð með Gulla Jóns
Athugasemdir
banner
banner