Dejan Lovren, miðvörður Liverpool og króatíska landsliðsins, hefur í sumar reglulega verið orðaður í vistaskipti frá Liverpool til Milan.
AC Milan hefur sýnt miðverðinum áhuga en samkvæmt Gazzetta dello Sport er félagið hætt við að reyna að fá Lovren til sín.
Milan einbeitir sér nú að því að fá Merih Demiral frá Juventus. Manchester United hefur einnig sýnt Demiral áhuga.

Demiral er tyrkneskur og gekk í raðir Juventus í sumar. Juventus borgaði 18 milljónir evra fyrir miðvörðinn sem var áður hjá Sassuolo og Alanyaspor.
Athugasemdir