Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. janúar 2021 09:53
Magnús Már Einarsson
Frank Lampard verður rekinn í dag
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, verður líklega rekinn úr starfi í dag samkvæmt frétt The Daily Telegraph. Fleiri enskir miðlar taka undir þessi tíðindi.

Leikmenn Chelsea fengu þau skilaboð í dag að mæta ekki á æfingasvæðið í dag. Telegraph segir að Lampard verði rekinn og að þetta verði líklega tilkynnt síðar í dag.

Chelesa hefur gengið afar illa undanfarnar vikur en liðið hefur tapað fimm af síðustu átta leikjum í ensku úrvalsdeildinni og situr nú í 9. sæti þar.

Þrátt fyrir 3-1 sigur á Luton Town í enska bikarnum í gær þá virðist stjóratíð Lampard vera á enda.

Hinn 42 ára gamli Lampard var sigursæll leikmaður hjá Chelsea en hann er á sínu öðru tímabili sem knattspyrnustjóri. Lampard hafði áður tekið eitt tímabil sem stjóri Derby County.

Athugasemdir
banner
banner
banner