Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 11:00
Elvar Geir Magnússon
Eigandi New York Jets kaupir hlut í Palace
Crystal Palace vann FA-bikarinn.
Crystal Palace vann FA-bikarinn.
Mynd: EPA
Woody Johnson, eigandi bandaríska NFL-félagsins New York Jets, hefur gert samkomulag um að kaupa hlut John Textor í enska úrvalsdeildarfélaginu Crystal Palace fyrir 190 milljónir punda.

Kaupin eru líkleg til að fá samþykki enska úrvalsdeildarinnar innan fjögurra vikna og opna leið fyrir Crystal Palace til þátttöku í Evrópudeildinni á næsta tímabili.

Samningurinn snýst um 44,9% hlut Textor í félaginu en hann á einnig meirihlutahlut í franska félaginu Lyon sem hefur einnig tryggt sér þátttökurétt í Evrópudeildinni. Enska úrvalsdeildin og UEFA fylgjast náið með málinu vegna reglna um eignarhald á félögum.

Textor, sem hefur fjárfest um 180 milljónir punda í Crystal Palace síðan 2021, hefur sætt sig við að yfirgefa félagið en hann og Steve Parish, stjórnarformaður félagsins, hafa verið í deilum bak við tjödin.

Það er óljóst hvort Johnson ætli að eignast meirihluta í Palace en sagt hefur verið að Josh Harris og David Blitzer séu að íhuga að selja sinn hlut.

Textor er sagður íhuga að kaupa annað enskt félag, þar hefur Sheffield Wednesday verð í umræðunni en félagið hefur átt í fjárhagserfiðleikum.
Athugasemdir
banner