Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
   sun 27. janúar 2013 18:33
Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Kristins: Enginn sem segir að Grétar eigi að fara
Rúnar Kristinsson þjálfari KR.
Rúnar Kristinsson þjálfari KR.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
,,Við sköpuðum ekki nógu mikið af færum, við vorum með boltann meira og minna allan leikinn ef frátaldar eru fyrstu 15-20 mínúturnar en við skopuðum allt of lítið af færum," sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR eftir 2-1 tap gegn Fjölni í Reykjavíkurmótinu í dag.

,,Þetta var hægt og þeir vörðust með tíu menn á eigin vallar helming nánast allan leikinn og ógnuðu okkur með hættulegum skyndisóknum. En við bjuggum ekki til nógu mörg færi og þetta gekk hægt. Það vantar ferskleika í liðið."

Grétar Sigfinnur Sigurðarson hefur fengið þau skilaboð frá KR að hann megi fara annað því hann sé ekki í plönum Rúnars.

,,Það er enginn sem segir að hann eigi að fara. Þjálfararnir eru að breyta um taktík, það eru leikmenn að koma sem eru að fara að spila þessa stöðu og keppa um stöðuna við hann. Grétar á tvö ár eftir af samningi og það er enginn sem getur rekið hann í burtu. Honum var gert ljóst að möguleikar hans yrðu minni á næsta keppnistímabili. Það er bara heiðarlegt að láta hann vita af því að kannski ætlum við að prófa nýja hluti og nýja taktík og þá passar hann ekki inn í það. Maður sem er kominn á þennan aldur vill spila alltaf og þá eru meiri möguleikar að spila annars staðar en í KR. Það er búið að ræða þessa hluti við hann, honum er frjálst að velja."

Rúnar var því spurður hvort hann væri tilbúinn að hafa Grétar áfram í breiddinni á hópnum?

,,Sem þjálfari vil ég alltaf hafa bestu mennina hjá mér en ég skil líka, ég hef verið leikmaður sjálfur, að það er ágætt að vita að ef maður er ekki inni í myndinni er ágætt að hugsa sinn gang. Það er verið að bjóða honum upp á þann möguleika."

Grétar Sigfinnur var á bekknum allan leikinn í dag.

,,Ég var að prófa Andra í stöðu hafsents og með Gunnar Þór sem var að spila vel. Svo þegar við gerðum breytingar á liðinu í seinni hálfleik þurfti ég ekki á hafsent að halda því við vorum með boltann inni á vallarhelmingi andstæðinganna allan tímann. Þá setti ég unga fríska stráka og leyfði þeim að fá sénsinn að spila."

Brynjar Björn Gunnarsson er líklega á leið heim í KR í vor. Er Rúnar að hugsa hann sem miðvörð með Andra Ólafssyni?

,,Brynjar er inni í myndinni já og Gunnar Þór líka. Gunnar Þór hefur það fram yfir alla í liðinu að hann er hafsent og hann er örvfættur og það er eitthvað sem mig hefur vantað lengi. Gunnar hefur verið að leika það gríðarlega vel þegar hann hefur leikið þá stöðu. Hann hefur verið óheppinn með meiðsli en nú er hann heill og er að spila gríðarlega vel. Það eykur aðeins á flóruna hjá okkur."
Slapp
banner
banner