,,Þetta er öðruvísi tilfinning sem er að flæða inn um líkamann, að við skulum vera að taka 1-0 sigra," sagði Jóhann Laxdal varnarmaður Stjörnunnar eftir sigur liðsins á Fram í Pepsi-deildinni í kvöld.
Oft hefur verið mikið skorað í leikjum Stjörnunnar en nú hefur liðið unnið báða útileiki sína í sumar 1-0.
,,Það lítur betur út hjá okkur. Það er alltaf verið að segja að varnarlínan sé svo ömurleg og eitthvað. Núna gengur þetta betur hjá okkur og þetta er team effort."
,,Við fórum vel yfir varnarleikinn í vetur og þetta voru lítil atriði sem við þurftum að laga. Koma Michael Præst gerir mikið og hjálpar liðinu."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















