Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
   sun 27. ágúst 2023 20:47
Brynjar Ingi Erluson
Donni: Verður vonandi gulls ígildi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Tindastóls, var sáttur við stigið sem liðið fékk í markalausa jafnteflinu gegn Þór/KA á Sauðárkróki í dag en liðið hafnaði í 7. sæti deildarinnar.

Lestu um leikinn: Tindastóll 0 -  0 Þór/KA

Markmið Tindastóls voru að halda sæti sínu í deildinni en það er auðvitað ekki öruggt enn því umspilið er eftir. Hann er samt sem áður ánægður við framlag liðsins eftir venjulegan hluta deildarinnar.

„Mjög ánægður að við náum sjöunda. Það var markmiðið, úr því sem komið var, að ná í sjöunda sætið. Við náðum því og mjög ánægður með það. Brjálæðislega ánægður með baráttuna og vinnusemina. Stelpurnar voru ótrúlega flottar, stoltur af þeim á móti frábæru Þór/KA-liði,“ sagði Donnið við Fótbolta.net, en hann er ánægður með að fá tvo heimaleiki í umspilinu.

„Miðað við stöðuna núna værum við gjarnan til í að þetta væri búið, því við erum á þeim stað sem við vildum vera á; það er að segja ekki í fallsæti þegar deildin er að klárast. Við erum búnar að bæta stigamet félagsins í efstu deild og erum mjög stoltar af því. Þetta lítur vel út og erum spennt fyrir framhaldinu og umspilinu. Við erum mjög ánægð að fá tvo heimaleiki af þessum þremur sem eftir eru og það verður vonandi gulls ígildi.“

„Uppleggið hefur verið svipað og í undanförnum sex leikjum. Setjum hápressu og reynum að vinna boltann ofarlega á velli, stundum gengur það upp og stundum ekki. Við ætluðum að reyna að komast á bakvið hægri hafsentinn þeirra. Hún er hægari en sá vinstri og ætluðum að reyna að meiða þær í föstum leikatriðum og reyna að búa til vesen í hraða upphlaupum, reyna að halda bolta og skipta milli kanta og búa til 'early crosses'. Það gekk því miður ekkert sérlega vel og heilt yfir spilið í dag. Baráttan og vinnusemin 'kickaði' frekar inn og heilt yfir ánægðar með niðurstöðuna miðað við hvernig leikurinn þróaðist,“
sagði Donni við Fótbolta.net.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
Athugasemdir
banner