Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 28. september 2020 12:56
Magnús Már Einarsson
Son missir af næstu leikjum Tottenham
Mynd: Getty Images
Heung-Min Son, leikmaður Tottenham, verður væntanlega fjarri góðu gamni í næstu leikjum liðsins.

Son var skipt af velli í hálfleik í leik liðsins gegn Newcastle í gær.

„Við verðum án hans í einhvern tíma. Þetta eru meiðsli aftan í læri," sagði Jose Mourinho, stjóri Tottenham, eftir leikinn í gær.

Tottenham mætir Chelsea í enska deildabikarnum á þriðjudag, Maccabi Haifa í Evrópudeildinni á fimmtudag og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

Líklegt er að Son missi af öllum þessum leikjum en síðan tekur við landsleikjahlé.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner