þri 29. september 2020 08:30
Aksentije Milisic
Carragher: Framtíð Guardiola veltur á frammistöðu Dias
Mynd: Getty Images
Sparkspekingurinn öflugi Jamie Carragher segir að Ruben Dias verði að reynast góð kaup hjá Manchester City, annars gæti Pep Guardiola farið frá liðinu eftir tímabilið.

City er að fara staðfesta félagskiptin en Benfica tilkynnti það í fyrradag að Dias sé á leiðinni til City. Nicolas Otamendi fer til Benfica á móti.

„Ef þetta verða ekki góð kaup hjá City og hann nær ekki að slá í gegn, þá sé ég City ekki vinna deildina og heldur ekki að Guardiola verði þarna áfram eftir tímabilið," sagði Carragher.

„Það veltur mjög mikið á þessu. Hann skrifar kannski undir nýjan samning ef þeir vinna deildina. Þessi gæji á að koma í staðinn fyrir Vincent Kompany."

„60 milljónir punda er mikill peningur. Ef þetta mun ekki ganga þá gæti þetta þýtt endalok Guardiola hjá City."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner