Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
Karólína Lea: Þetta snýst um meira en bara fótbolta hjá þeim
Badu: Ánægður að hafa unnið leikinn svona miðað við hvernig hann spilaðist
Hafrún Rakel: Við þurfum að sýna að við erum betra lið og klára leikinn
Brynjar Björn: Svekkjandi að tapa á svona marki
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
   sun 31. maí 2015 21:46
Hafliði Breiðfjörð
Lennon eftir þrennuna: Átti að skora 1-2 fleiri
Lennon skoraði þrjú og lagði upp eitt.
Lennon skoraði þrjú og lagði upp eitt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var góður leikur, nokkur mörk svo ég er mjög ánægður," sagði Steven Lennon sem var frábær í liði FH í 4-2 sigri á Leikni í kvöld, skoraði þrjú og lagði upp eitt.

Lestu um leikinn: FH 4 -  2 Leiknir R.

„Ég var bara búinn að skora eitt mark í fyrstu fimm leikjunum svo ég var ákveðinn í að skora fleiri í dag. Vonandi heldur það áfram en það mikilvægasta er að vinna leikinn og fá fleiri stig."

„Þetta var mjög erfitt, við vissum að þeir myndu koma og berjast. Við áttum von á því og vanmátum þá ekki. Við spiluðum ekki okkar besta leik en skoruðum fjögur góð mörk og ég held við séum á toppi deildarinnar svo vonandi getum við haldið því áfram í sumar."


Mikil spenna var síðustu mínútur leiksins þar sem Leiknismenn sóttu stíft í stöðunni 3-2 eða þar til Lennon skoraði úr lokasókn FH úr víti fjórða markið.

„Staðan var 3-2 og það var alltaf spenna. Við vorum samt í betri stöðu, við hefðum getað gert okkur þetta auðveldara, ég átti að skora 1-2 fleiri mörk. En svona gerist þetta í fótboltanum og ég er ánægður með að hafa fengið þrjú stig."

Lennon lá í grasinu í öðru marki FH, en reif sig upp og skoraði með bakfallsspyrnu þaðan sem hann lá.

„Atli sendi fyrir og ég reyndi að skjóta með vinstri fæti, þeir vörðust og ég lá í grasinu, boltinn var uppi þegar ég lá í grasinu og fór upp og skaut afturfyrir mig. Sem betur fer var þetta mark, ég var virkilega ánægður þegar hann fór inn."

Í þriðja marki FH gerði Lennon svipað þar sem hann lá í grasinu en þá var það stoðsending.

„Það er alltaf gaman að skora og leggja upp sem sóknarmaður en ég vil bara reyna að fá stig fyrir FH, ná árangri í deildinni og vinna hana í ár. Ég er líka mjög ánægður með þrennuna, auðvitað."
Slapp
banner