Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
   mið 08. ágúst 2012 21:46
Ívan Guðjón Baldursson
Guðjón Antoníusson: Þeir hættu að gefa á mig
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Guðjón Árni Antoníusson skoraði tvö mörk gegn Selfyssingum í Kaplakrika í kvöld og var ánægður með sigurinn eftir leikinn.

Guðjón viðurkennir að þetta hafi verið erfið fæðing en í síðari hálfleik tóku FH-ingar öll völd og gerðu út um leikinn.

,,Ég er bara mjög ánægður með að ná í þrjú stig, mjög gott að skora fimm mörk, ekki nógu gott að fá á sig tvö. Þannig að plúsarnir eru fleiri en mínusarnir og við erum sáttir.

,,Leikurinn er 90 mínútur og þeir börðust eins og ljón í fyrri hálfleik. Eftir að við setjum mark í 2-1 í byrjun seinni þá fannst mér dofna aðeins yfir þeim. Mér fannst við eiga seinni hálfleik frá A til Ö."


FH er nú á toppnum eftir að KR tapaði fyrir ÍBV fyrr í dag og skilja tvö stig liðin að, en FH á leik til góða á KR og getur því komist í fimm stiga forskot.

,,Það er gott að vera á toppnum. Við förum í hvern leik til að vinna hann og það breytist ekkert eftir þetta."

Guðjón skoraði tvö mörk í leiknum og segir að liðsfélagarnir hafi ekki viljað leyfa varnarmanni að skora þrennu í leiknum þar sem hann er kominn í harða markasamkeppni við miðju- og sóknarmenn FH.

,,Þeir hættu að gefa á mig um leið og ég var kominn með tvö, þá bara var ég inni í teignum aleinn og það nennti enginn að gefa á mig."
Slapp
banner
banner
banner