Anthony Martial, kantmaður Manchester United, birti í kvöld mynd á Instagram af sér og unnustu sinni Melanie da Cruz.
Við myndina skrifar hann:
„Ég vil biðja ættingja mína, fallegu fjölskyldu mína og sérstaklega unnustu mína afsökunar fyrir skaðann sem ég hef valdið síðustu mánuði. Ég gerði mistök og biðst ég afsökunar á því. Þetta mun ekki koma fyrir aftur."
Martial gefur það ekki upp á hverju er hann að biðjast afsökunar en enskir fjölmiðlar eru nokkuð vissir um að Martial hafi þarna verið að biðjast afsökunar á framhjáhaldi.
Sögur eru um að Martial hafi haldið fram hjá unnustu sinni á meðan hún var ólétt.
Da Cruz fæddi fyrsta barn hennar og Martial, dreng að nafni Swan, í júlí síðastliðnum.
Martial skrifaði undir nýjan samning við Manchester United á dögunum og er hann núna samningsbundinn félaginu til 2024.
Athugasemdir