Magnús Valur Böðvarsson, þekktasti vallarstjóri landsins, hefur sagt skilið við Kópavoginn og er orðinn vallarstjóri hjá KR.
Maggi Bö, eins og hann er kallaður, hefur fengið verðskuldað lof fyrir frammistöðu sína með Kópavogsvöll undanfarin ár. Hann var valinn vallarstjóri ársins á Íslandi 2018.
Magnús Valur er menntaður í grasvallarfræðum og fór ekki leynt með óánægju sína með þá ákvörðun að setja gervigras á Kópavogsvöllinn.
KR opinberaði á Twitter að Magnús væri kominn til félagsins.
„Þetta er án gríns risa stórt fyrir KR. Hef fylgst með Magga lengi. Hann byrjaði á Álftanesvelli og sú vinna skilaði sér í falinni perlu, enda hafa mörg landslið æft þar. Til hamingju KR, þið voruð að næla ykkur í gullmola. Greinilegt að KR vill aðeins það besta," skrifaði Kjartan Atli Kjartansson, fjölmiðlamaður, á Twitter.

Vallarstjóri ársins árið 2018 er mættur til starfa, bjóðum hann velkominn @zicknut pic.twitter.com/Kvm6NJrQxx
— KR Reykjavik FC (@KRreykjavik) April 23, 2019
Þakkir til @zicknut fyrir að hugsa vel um vellina okkar í Kópavogi í mörg ár. 👏🏻👏🏻. Geggjuð kaup hjá @KRreykjavik
— gulligull1 (@GGunnleifsson) April 23, 2019
Athugasemdir