Man Utd vill fá Watkins - Helmingslíkur á að Ten Hag verði áfram - PSG hefur áhuga á Mateta
   lau 08. desember 2007 08:34
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: AP 
Eriksson bannar boxið en Sir Alex ætlar að vaka
Ricky Hatton ásamt Wayne Rooney.
Ricky Hatton ásamt Wayne Rooney.
Mynd: Getty Images
Sir Alex Ferguson ætlar að vaka í nótt.
Sir Alex Ferguson ætlar að vaka í nótt.
Mynd: Getty Images
Sven Göran Eriksson knattspyrnustjóri Manchester City hefur farið sömu leið og Rafael Benítez kollegi hans hjá Liverpool og bannað leikmönnum sínum að horfa á boxbardaga Ricky Hatton og Floyd Mayweather um næstu nótt en Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Man Utd ætlar sér sjálfur að vaka frameftir til að sjá þennan umtalaða boxbardaga.

Sjaldan hefur önnur íþrótt haft eins mikil áhrif á ensku úrvalsdeildina og þessi boxbardagi Hatton og Mayweather og má sennilega rekja það til þess að Hatton er Englendingur, hann er fótboltaáhugamaður, stuðningsmaður Manchester City og góður vinur Wayne Rooney.

Bardaginn hefst líklega um 04:00 í nótt og þá búast við því að Hatton stígi inn í hringinn í bláum litum Manchester City. Eriksson vill hinsvegar ekki að leikmenn sínir horfi á bardagann enda á liðið fyrir höndum leik gegn Bolton á morgun.

,,Ég segi leikmönnum mínum að sofa," sagði Sven Göran Eriksson í gær.

,,Sumir úr sjúkraþjálfarateyminu munu horfa á bardagann en ekki leikmennirnir. Þeir munu ekki verða vakandi klukkan fjögur því þeir eiga mikilvægan leik fyrir höndum. Vonandi verður þetta endursýnt klukkan níu eða tíu um morguninn því þeir geta horft þá."

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United tjáði sig ekki um hvað leikmenn hans mega gera en var ákveðinn í því sjálfur að vaka eftir bardaganum.

,,Hann hefur ekki náð á toppinn án frábærra hæfileika og mikils hugrekkis," sagði Ferguson en hans menn mæta Derby í dag.

,,Ricky er sérstakur. Hann er svona maður sem gefst aldrei upp, hann leggur hart að sér á fæingum, hann er harður og hann er snöggur. Hann á frábæra möguleika. Ég mun horfa á þetta, pottþétt."
Athugasemdir
banner
banner
banner