Isak vill enn fara - Vlahovic orðaður við Liverpool og Newcastle - Lammens færist nær Manchester United
   mið 27. ágúst 2025 10:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fundu sinn innri Guðjohnsen
Sigtryggur Arnar lék listir sínar í myndbandinu.
Sigtryggur Arnar lék listir sínar í myndbandinu.
Mynd: Skjáskot - Instagram
Íslenska landsliðið í körfubolta hefur leik á Evrópumótinu í körfubolta á morgun er þeir mæta Ísrael.

Þetta er í þriðja sinn þar sem körfuboltalandslið Íslands tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins, eða Eurobasket eins og það er kallað.

Eurobasket birti í gær skemmtilegt myndband á Instagram sínu sinni þar sem má sjá landsliðsmenn Íslands leika listir sínar með fótboltann.

„Þarna finna þeir sinn innri Eið Smára Guðjohnsen," segir við myndbandið.

Í myndbandinu má sjá þá Sigtrygg Arnar Björnsson og Martin Hermannsson leika listir sínar með fótboltann.

Sigtryggur Arnar spilaði á sínum tíma einn leik í 4. deild með Skallagrími. Martin var þá í yngri flokkum KR og Gróttu.

Hér fyrir neðan má sjá þetta skemmtilega myndband.



Athugasemdir