Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 19:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hálfleikur: PSG í ansi góðum málum
Mynd: EPA
Paris Saint Germain 2 - 0 Inter
1-0 Achraf Hakimi ('12 )
2-0 Desire Doue ('20 )

Það er kominn hálfleikur í úrslitum Meistaradeildarinnar þar sem PSG og Inter eigast við í Munchen.

Eins og búast mátti við hefur PSG stjórnað ferðinni og er með verðskuldaða tveggja marka forystu þegar búið er að flauta til hálfleiks.

Búist var við að Inter liðið yrði þétt og gæti refsað í sókninni en liðið hefur sýnt litla sem enga sóknartilburði.

PSG náði foyrstunni snemma leiks. Desire Doue fékk boltann inn á teignum og sendi boltann á Achraf Hakimi sem skoraði á opið markiið gegn gömlu félögunum. Hann var keyptur til PSG frá Inter árið 2021.

Doue var ekki hættur því hann batt endahnútinn á góða skyndisókn efti tuttugu mínútna leik. Þessi 19 ára gamli leikmaður er sá yngsti til að skora og leggja upp í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner