Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 18:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Dembele á fund með sögunni í kvöld"
Mynd: EPA
PSG hefur verið eitt sterkasta lið Evrópu undanfarin ár en á enn eftir að stíga skrefið og vinna Meistaradeildina.

Það er dauðafæri í kvöld þar sem liðið er komið alla leið í úrslit og mætir Inter í Munchen.

Ousmane Dambele hefur verið stórkostlegur á tímabilinu og franski fréttamaðurinn Julien Laurens er sannfærður um að Dembele muni sýna sitt rétta andlit í kvöld.

„Hann hefur staðið sig á vellinum, sérstaklega frá því í desember en hann hefur verið óstöðvandi síðan þá."

„Þekkjandi hann þá mun hann ekki láta tilefnið, stuðningsmennina, Acerbi, Bastoni eða Pavard trufla sig. Hann veit að hann á fund með sögunni í kvöld og hann vill ekki látta það framhjá sér fara."
Athugasemdir
banner
banner
banner