Maurizio Sarri er orðaður við endurkomu sem stjóri Lazio en hann er sagður vera búinn að ná munnlegu samkomulagi við félagið.
Sarri var stjóri Lazio frá 2021 en hætti í mars 2024 og hefur verið atvinnulaus síðan þá.
Hann mun taka við af Marco Baroni sem stýrði Lazio í 7. sæti og liðið mun ekki spila í Evrópukeppni á næstu leiktíð.
Sarri er 66 ára gamall Ítali og hefur stýrt liðum á borð við Napoli, Chelsea og Juventus.
Athugasemdir