PSG er komið með forystuna í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Inter í Munchen.
PSG hefur verið mun meira með boltann í upphafi leiks og það var Achraf Hakimi, fyrrum leikmaður Inter sem braut ísinn.
Desire Doue fékk boltann inn á teignum eftir frábæran spilkafla liðsins. Hann sendi boltann þvert yfir teiginn á Hakimi sem skoraði af öryggi á opið markið.
Hakimi gekk til liðs við PSG frá Inter árið 2021 en hann lék 45 leiki með ítalska liðinu og skoraði sjö mörk.
Sjáðu markið hér
Athugasemdir