Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 16:15
Brynjar Ingi Erluson
„Dimarco einn sá besti í heimi“
Mynd: EPA
Federico Dimarco, leikmaður Inter á Ítalíu, er einn besti vinstri bakvörður heims, en þetta sagði brasilíska goðsögnin Roberto Carlos fyrir úrslitaleik liðsins gegn Paris Saint-Germain í dag.

Dimarco hefur svo sannarlega tekist að sanna heiminn um ágæti sitt en það er alltaf mikil viðurkenning að heyra það frá einum besta vinstri bakverði sögunnar.

Carlos spilaði um stutt skeið með Inter, nánar tiltekið tímabilið 1995-1996, áður en hann var seldur til Real Madrid fyrir litlar 4,5 milljónir punda.

„Hann er einn besti vinstri bakvörður heims og vona ég svo innilega að hann spili alltaf vel. Það er það mikilvægasta,“ sagði Carlos fyrir úrslitaleikinn.

Dimarco hefur verið sérstaklega góður síðustu þrjú tímabil og verið valinn tvö ár í röð í lið ársins á Ítalíu og var í liði ársins í Meistaradeild Evrópu árið 2023.

Þessi 27 ára gamli Ítali verður á sínum stað í vængbakverðinum gegn PSG, en hann hefur komið að fimmtán mörkum í öllum keppnum til þessa og alls ekki útilokað að hann bæti eitthvað við þá tölfræði í kvöld.
Athugasemdir
banner