Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 17:09
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Rúnar Ingi frábær í sigri Vogamanna - KFG skoraði fimm í fyrsta sigrinum
KFG náði loksins í sigur
KFG náði loksins í sigur
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Rúnar Ingi skoraði tvö og lagði upp eitt
Rúnar Ingi skoraði tvö og lagði upp eitt
Mynd: Augnablik
Jordan Adeyemo heldur áfram að tæta í sig deildina
Jordan Adeyemo heldur áfram að tæta í sig deildina
Mynd: Ægir
Fjórum leikjum er lokið í fimmtu umferð 2. deildar karla en allt var nokkurn veginn eftir bókinni.

KFA 0 - 3 Þróttur V.
0-1 Rúnar Ingi Eysteinsson ('27 )
0-2 Rúnar Ingi Eysteinsson ('40 )
0-3 Birgir Halldórsson ('82 )
Lestu um leikinn

Þróttur V. vann 3-0 sigur á KFA á SÚN-vellinum. Rúnar Ingi Eysteinsson kom að öllum mörkum gestanna og sá til þess að Vogamenn væru áfram með fullt hús stiga.

Bæði mörk Rúnars komu í fyrri hálfleiknum. Hann slapp í gegn á 27. mínútu eftir klaufagang í vörn heimamanna og skoraði áður en hann bætti við öðru fimm mínútum fyrir lok hálfleiksins.

Aftur slapp hann í gegn, nema hvað að skot hans fór í stöngina, en heppnin var með honum því boltinn datt aftur fyrir hann og nýtti hann frákastið.

KFA var sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum, en gestirnir refsuðu þeim á réttum augnablikum. Í þeim síðari þjörmuðu KFA vel að Vogamönnum og komu upp nokkur vafaatriði.

Marteinn Már Sverrisson var tekinn niður í teignum en engin vítaspyrna dæmd og heyrðust í kjölfarið mikil læti frá bekk heimamanna og stuttu síðar slapp Marteinn í gegn, en flögguð rangstaða.

Átta mínútum fyrir leikslok gerði varamaðurinn Birgir Halldórsson út um leikinn. Rúnar Ingi með undirbúninginn og Birgir með frábært hlaup.

Lokatölur 3-0. Þróttar eru því með 15 stig og áfram með fullt hús stiga á toppnum, en KFA í 5. sæti með 7 stig.

Ægir 2 - 0 Haukar
1-0 Jordan Adeyemo ('16 )
2-0 Jordan Adeyemo ('37 )

Ægir vann Hauka, 2-0, á GeoSalmo-vellinum í Þorlákshöfn.

Jordan Adeyemo skoraði bæði mörk Ægismanna og er nú kominn með 7 mörk í fimm leikjum. Verið mögnuð viðbót við lið Ægis sem fer upp fyrir Hauka og í 2. sæti með 10 stig. Haukar eru í 3. sæti með jafnmörg stig, en slakari markatölu.

Ægir Andri Þór Grétarsson (m), Stefan Dabetic, Aron Fannar Hreinsson (73'), Atli Rafn Guðbjartsson, Jordan Adeyemo (90'), Dimitrije Cokic, Sigurður Óli Guðjónsson, Einar Breki Sverrisson, Benedikt Darri Gunnarsson, Baptiste Gateau, Bjarki Rúnar Jónínuson (82')
Varamenn Ísak Aron Ómarsson (82'), Jón Jökull Þráinsson, Bilal Kamal (90'), Aron Daníel Arnalds (73'), Aron Óskar Þorleifsson (m)

Haukar Sveinn Óli Guðnason (m), Daníel Smári Sigurðsson, Bjarki Viðar Björnsson (76'), Fannar Óli Friðleifsson, Ævar Daði Segatta (39'), Máni Mar Steinbjörnsson, Daði Snær Ingason, Óliver Steinar Guðmundsson (57'), Óliver Þorkelsson, Hallur Húni Þorsteinsson (46'), Magnús Ingi Halldórsson (76')
Varamenn Eiríkur Örn Beck (46), Ísak Jónsson (76), Kostiantyn Iaroshenko, Alexander Aron Tómasson (57), Theodór Ernir Geirsson (76), Guðjón Pétur Lýðsson (39), Þorsteinn Ómar Ágústsson (m)

KFG 5 - 0 Höttur/Huginn
1-0 Kristján Ólafsson ('15 )
2-0 Sjálfsmark ('20 )
3-0 Dagur Óli Grétarsson ('25 )
4-0 Magnús Andri Ólafsson ('45 )
5-0 Kristján Ólafsson ('49 )

KFG unnu sinn fyrsta leik á tímabilinu er liðið valtaði yfir Hött/Huginn, 5-0, á Samsung-vellinum í Garðabæ.

Heimamenn gerðu út um leikinn á tæpum hálftíma. Kristján Ólafsson skoraði á 15. mínútu og kom annað markið fimm mínútum síðar er gestirnir settu boltann í eigið net. Dagur Óli Grétarsson, sem kom inn af bekknum í fyrri hálfleiknum, gerði þriðja markið á 25. mínútu.

Magnús Andri Ólafsson bætti við fjórða undir lok hálfleiksins og setti Kristján annað mark sitt strax í upphafi síðari.

Fyrsti sigur KFG staðreynd sem kemur sér af botninum og í 10. sætið með 4 stig en Höttur/Huginn, sem er áfram með 1 stig, fer á botninn.

KFG Guðmundur Rafn Ingason (m), Jón Arnar Barðdal, Róbert Kolbeins Þórarinsson, Magnús Andri Ólafsson, Helgi Snær Agnarsson, Kristján Ólafsson, Arnar Ingi Valgeirsson, Adrían Baarregaard Valencia, Bóas Heimisson, Guðmundur Thor Ingason, Jökull Sveinsson
Varamenn Guðmundur Ísak Bóasson, Benedikt Pálmason, Atli Freyr Þorleifsson, Arnar Darri Þorleifsson, Dagur Óli Grétarsson, Djordje Biberdzic, Eyþór Örn Eyþórsson

Höttur/Huginn Gerard Tomas Iborra (m), André Musa Solórzano Abed, Eyþór Magnússon, Genis Arrastraria Caballe, Rafael Llop Caballe, Danilo Milenkovic, Sæþór Ívan Viðarsson, Bjarki Fannar Helgason, Kristófer Páll Viðarsson, Stefán Ómar Magnússon, Kristján Jakob Ásgrímsson
Varamenn Björgvin Stefán Pétursson, Þór Albertsson, Þórhallur Ási Aðalsteinsson, Ívar Logi Jóhannsson, Bjarki Nóel Brynjarsson, Árni Veigar Árnason, Brynjar Smári Ísleifsson (m)

Víðir 1 - 1 Grótta
1-0 David Toro Jimenez ('41 , Mark úr víti)
1-1 Björgvin Brimi Andrésson ('48 )

Víðir og Grótta skildu jöfn, 1-1, á Nesfisk-vellinum.

David Toro Jimenez kom heimamönnum í forystu með marki úr vítaspyrnu á 41. mínútu, en Seltirningar svöruðu strax í upphafi síðari er Björgvin Brimi Andrésson skilaði boltanum í netið.

Grótta er með 8 stig í 4. sæti en Víðir í 9. sæti með 5 stig.

Víðir Joaquin Ketlun Sinigaglia (m), Cameron Michael Briggs, Alexis Alexandrenne, David Toro Jimenez (52'), Uros Jemovic, Daniel Beneitez Fidalgo (82'), Cristovao A. F. Da S. Martins, Björgvin Freyr Larsson, Haraldur Smári Ingason, Dominic Lee Briggs, Kristófer Snær Jóhannsson
Varamenn Dusan Lukic, Ottó Helgason, Markús Máni Jónsson (52'), Tómas Freyr Jónsson, Aron Örn Hákonarson (82'), Þórir Guðmundsson, Jón Garðar Arnarsson (m)

Grótta Marvin Darri Steinarsson (m), Kristófer Melsted, Daði Már Patrekur Jóhannsson, Patrik Orri Pétursson, Caden Robert McLagan, Björgvin Brimi Andrésson, Grímur Ingi Jakobsson, Axel Sigurðarson (77'), Valdimar Daði Sævarsson, Viktor Orri Guðmundsson (69'), Kristófer Dan Þórðarson (77')
Varamenn Björgvin Stefánsson (77), Halldór Hilmir Thorsteinson, Hrannar Ingi Magnússon, Birgir Davíðsson Scheving, Einar Tómas Sveinbjarnarson (77), Daníel Agnar Ásgeirsson (69), Alexander Arnarsson (m)
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þróttur V. 5 5 0 0 10 - 2 +8 15
2.    Ægir 5 3 1 1 10 - 6 +4 10
3.    Haukar 5 3 1 1 9 - 6 +3 10
4.    Kormákur/Hvöt 5 3 0 2 6 - 11 -5 9
5.    Grótta 5 2 2 1 6 - 5 +1 8
6.    KFA 5 2 1 2 12 - 8 +4 7
7.    Dalvík/Reynir 5 2 1 2 7 - 4 +3 7
8.    Víkingur Ó. 5 1 2 2 9 - 8 +1 5
9.    Víðir 5 1 2 2 6 - 7 -1 5
10.    KFG 5 1 1 3 8 - 10 -2 4
11.    Kári 5 1 0 4 4 - 8 -4 3
12.    Höttur/Huginn 5 0 1 4 3 - 15 -12 1
Athugasemdir
banner