Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 03. febrúar 2023 18:29
Brynjar Ingi Erluson
Aubameyang og Badiashile ekki í Meistaradeildarhóp Chelsea
Mynd: Getty Images
Pierre-Emerick Aubameyang og Benoit Badiashile eru ekki í Meistaradeildarhópnum hjá Chelsea fyrir úrslitakeppnina en hópurinn var staðfestur í dag.

Aubameyang hefur ekki verið í stóru hlutverki hjá Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og fer mínútunum fækkandi.

Hann byrjaði hins vegar alla leiki liðsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar og kemur því á óvart að hann sé ekki í hópnum fyrir seinni hlutann.

Franski varnarmaðurinn Benoit Badiashile er heldur ekki í hópnum en Chelsea keypti hann frá Mónakó í síðasta mánuði.

Badiashile hefur byrjað tvo síðustu leiki Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og er ætlað stórt hlutverk í liðinu en það verður ekki þörf á honum í Meistaradeildinni. Andrey Santos, David Datro Fofana og Noni Madueke eru ekki heldur í hópnum.

Mykhailo Mudryk, Joao Felix, Enzo Fernandez eru allir í hópnum en það vekur helst athygli að Hakim Ziyech er þar. Hann reyndi að komast frá Chelsea undir lok gluggans og var mættur til Frakklands til að ganga frá lánssamningi við Paris Saint-Germain, en skiptin fóru aldrei í gegn.
Athugasemdir
banner
banner
banner