
„Tilfinningin var mjög góð og extra skemmtilegt að fá að vera númer fimm," sagði Fanndís Friðriksdóttir eftir 0-2 tap gegn Frakklandi í Þjóðadeildinni í kvöld.
Fanndís var að spila sinn fyrsta landsleik í fimm ár en á þeim tíma hefur hún komið til baka eftir krossbandsslit og tvær barneignir.
Fanndís var að spila sinn fyrsta landsleik í fimm ár en á þeim tíma hefur hún komið til baka eftir krossbandsslit og tvær barneignir.
„Mér fannst þetta svekkjandi. Það voru tvö óþarfa mörk sem við fengum á okkur. Einbeitingarleysi í nokkrar sekúndur. Þær refsuðu okkur fyrir það."
„Þær áttu ekkert skilið að vinna 2-0," sagði Fanndís eftir leikinn og bætti við:
„Ég hef aldrei spilað á svona góðum Laugardalsvelli."
Það styttist í Evrópumótið og Fanndís viðurkennir að það kitlar að komast þangað með liðinu.
„Ég viðurkenni að það kitlar alveg. Ég var kannski ekki alveg komin þangað, en það kitlar núna vissulega að taka þátt í því. Við verðum að bíða og sjá, en ég er klár ef kallið kemur."
Athugasemdir