Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. október 2020 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ancelotti: Nýir leikmenn á leiðinni
Ben Godfrey mun veita Yerry Mina og Michael Keane aukna samkeppni.
Ben Godfrey mun veita Yerry Mina og Michael Keane aukna samkeppni.
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti segir fleiri leikmenn vera á leið til Everton fyrir gluggalok eftir að félagið krækti í þrjá miðjumenn og varnarmann í sumar.

Allan, James Rodriguez og Abdoulaye Doucouré hafa byrjað vel undir stjórn Ancelotti sem ætlar að bæta fleirum við hópinn í stöður þar sem vantar breidd.

„Ég er ekki að spá í þessum málum núna, það eru aðrir menn í því starfi. Það eru einhverjir á leiðinni inn og aðrir á leiðinni út," sagði Ancelotti. „Það eru nokkrir nýir leikmenn á leiðinni hingað."

Einn þessara leikmanna er Ben Godfrey, miðvörður Norwich sem kostar tæpar 30 milljónir punda. Annar gæti verið Sergio Romero, þriðji markvörður Manchester United, sem myndi veita hinum mistæka Jordan Pickford samkeppni um byrjunarliðssætið.

Varnarmennirnir Jean-Clair Todibo og Fikayo Tomori hafa einnig verið orðaðir við Everton síðustu daga.
Athugasemdir
banner
banner
banner