Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 16:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Framarar stefna á að kynna Ægi fyrir Víkingsleikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ægir Jarl Jónasson eru að fljúga til Íslands frá Kaupmannahöfn í dag. Ægir er við það að ganga í raðir Fram frá danska félaginu AB.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net mun hann gangast undir læknisskoðun eftir komuna til Íslands og vonast Framarar til þess að hægt verði að kynna Ægi fyrir leik liðsins, á Lambhagavelli, gegn Víkingi í Mjólkurbikarnum.

Ægir er að kveðja AB eftir tæplega tveggja ára veru hjá félaginu; kom frá KR í sumarglugganum 2024.

Ægir hefur verið að glíma við meiðsli og er óljóst hvenær hann getur spilað sinn fyrsta leik fyrir Fram.

Eftir leikinn gegn Víkingi eru átta dagar í fyrsta deildarleik sem er heimaleikur gegn ÍA.

Ægir er fæddur 1998, hann er fjölhæfur miðjumaður sem uppalinn er í Fjölni en gekk í raðir KR árið 2019 og spilaði þar undir stjórn Rúnars Kristinssonar, núverandi þjálfara Fram, áður en hann hélt til AB árið 2024. Þar spilaði hann fyrir Jóhannes Karl Guðjónsson sem hætti hjá AB í lok síðasta árs og tók við FH.

Slapp
banner
banner