Seinni leikirnir í undanúrslitum danska bikarsins voru spilaðir í dag og ljóst er hvaða lið mætast í úrslitaleiknum. Það verða Nordsjælland og HB Köge.
Nordsjælland var með sex marka forskot eftir fyrri leikinn gegn Kolding og vann 2-3 útisigur í dag.
Unglingalandsliðskonan Rebekka Sif Brynjarsdóttir lék allan leikinn með Nordsjælland í dag en hún hefur verið að spila reglulega með liðinu eftir áramót. Rebekka verður 17 ára í lok mánaðar og var leikurinn í dag hennar fyrsti byrjunarliðsleikur með aðalliði Nordsjælland sem keypti hana af Gróttu síðasta sumar.

Hin undanúrslitaviðureignin var jöfn eftir fyrri leik HB Köge og Bröndby. Liðin mættust á heimavelli Bröndby í dag og unnu gestirnir 1-4 sigur. Hafrún Rakel Halldórsdóttir var í byrjunarliði Bröndby í leiknum og lék fyrsta klukkutímann.
Þetta er fjórða árið í röð sem Nordsjælland fer í úrslitaleikinn. Úrslitaleikurinn verður spilaður 16. maí og fer fram í Köge.