Lyon W 4 - 0 Wolfsburg W
1-0 Lily Yohannes ('16 )
2-0 Daelle Melchiie Dumornay ('102 )
3-0 Damaris Bereta Egurrola ('105 )
4-0 Tabitha Chawinga ('119 )
1-0 Lily Yohannes ('16 )
2-0 Daelle Melchiie Dumornay ('102 )
3-0 Damaris Bereta Egurrola ('105 )
4-0 Tabitha Chawinga ('119 )
Lyon, sigursælasta liðið í sögu Meistaradeildarinnar, var einu marki undir fyrir seinni leikinn gegn Wolfsburg á heimavelli í átta liða úrslitum keppninnar í kvöld.
Lyon, sem hefur unnið keppnina átta sinnum, jafnaði einvígið eftir stundafjórðung þegar hin 18 ára gamla Lily Yohannes skoraði. Mörkin urðu ekki fleiri í venjulegum leiktíma og því þurfti að grípa til framlengingar.
Þar komst Lyon í mikinn gír. Liðið kom boltanum fjórum sinnum í netið en þrjú mörk dæmd gild. 4-0 sigur í kvöld og Lyon vann einvígið samanlagt 4-1.
Liðið mætir núverandi meisturum í Arsenal í undanúrslitunum. Barcelona og Bayern mætast í hinum undanúrslitaleiknum.



