Barcelona 6 - 0 Real Madrid (12-2)
1-0 Alexia Putellas ('8 )
2-0 Caroline Graham ('15 )
3-0 Irene Paredes ('27 )
4-0 Ewa Pajor ('34 )
5-0 Caroline Graham ('55 )
6-0 Esmee Brugts ('74 )
1-0 Alexia Putellas ('8 )
2-0 Caroline Graham ('15 )
3-0 Irene Paredes ('27 )
4-0 Ewa Pajor ('34 )
5-0 Caroline Graham ('55 )
6-0 Esmee Brugts ('74 )
Barcelona er komið áfram í undanúrslit Meistaradeildar kvenna eftir stórsigur á erkifjendum sínum í Real Madrid.
Barcelona var komið með annan fótinn í undanúrslitin eftir fyrri leik liðanna sem endaði með 6-2 sigri.
Liðið var ekkert að slaka á í kvöld því liðið vann 6-0 og því samanlagt 12-2. Spænska landsliðskonan Alexia Putellas fór mikinn en hún skoraði eitt og lagði upp tvö mörk.
Barcelona mætir Glódísi Perlu Viggósdóttir og stöllum í Bayern í undanúrslitum. Það kemur í ljós seinna í kvöld hvort Wolfsburg eða Lyon mætir Arsenal í hinum undanúrslitaleiknum en Wolfsburg er með 1-0 forystu eftir fyrri leikinn.


