Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De Zerbi útskýrir ummæli sín um Greenwood til að róa stuðningsmenn Spurs
Mason Greenwood
Mason Greenwood
Mynd: EPA
Roberto De Zerbi
Roberto De Zerbi
Mynd: EPA
Roberto De Zerbi hefur beðið stuðningsmenn Tottenham afsökunar á ummælum sem hann lét falla um Mason Greenwood á síðustu leiktíð.

Greenwood var ákærður fyrir tilraun til nauðgunar, stjórnsöm og nauðgandi hegðun og líkamsárás sem olli raunverulegum líkamstjóni árið 2022 áður en þeim var vísað frá. Greenwood spilaði undir stjórn De Zerbi hjá Marseille.

„Ég vil ekki blanda mér inn í einkalíf fólks. Ég blanda mér ekki einu sinni inn í einkalíif barnanna minna því ég vil gefa öllum frelsi," sagði De Zerbi í fyrra.

„Eina sem ég get sagt er að Greenwood virðist vera góður náungi, hann fékk það sem hann átti skilið. Hann hefur fundið rétt umhverfi fyrir sig hérna sem gaf honum ást og hjálparhönd. Þegar ég horfi á hnan sem manneskju finn ég fyrir sorg út af því sem gerðist án þess að vita smáatriðin. Manneskjan sem ég þekki er önnur þeirri sem hefur verið lýst."

Margir stuðningsmenn Tottenham voru ósáttir með ráðninguna á De Zerbi á dögunum en hann bað stuðningsmennina afsökunar í viðtali sem félagið birti í dag.

„Ég hef aldrei viljað gera lítið úr ofbeldi gegn konum, eða ofbeldi gegn neinum almennt. Ég hef stöðugt barist og tekið afstöðu með þeim sem eru í mestri hættu," sagði De Zerbi.

„Þeir sem þekkja mig vel vita að ég er ekki sú manneskja sem gerir málamiðlanir til að vinna fleiri leiki eða auka titil. Fyrirgefið ef ég hef móðgað tilfinningar einhvers með þessu. Ég á dóttur og ég er mjög viðkvæmur fyrir þessum hlutum og hef alltaf verið það. Ég vona að með tímanum muni fólk kynnast mér betur og skilja að á þeirri stundu ætlaði ég ekki að taka afstöðu.“
Slapp
banner
banner