Tumi Fannar Gunnarsson er líklega á förum frá Breiðabliki en þessi 21 árs gamli leikmaður spilaði 22 leiki með Fylki á láni í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa nokkur félög í Lengjudeildinni áhuga á að fá hann í sinar raðir.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa nokkur félög í Lengjudeildinni áhuga á að fá hann í sinar raðir.
Tumi er miðjumaður og er uppalinn í Kópavoginum en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir þá grænu sumarið 2024 þar sem hann spilaði fjóra leiki í Bestu deildinni. Hann skoraði sitt fyrsta mark í Mjólkurbikarnum það sumar.
Hann hóf meistaraflokksferil sinn með Augnabliki í 3. deild sumarið 2023 þar sem hann spilaði 13 leiki og skoraði tvö mörk.


