Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 16:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Anna Rakel ólétt
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anna Rakel Pétursdóttir, leikmaður Vals, er ólétt að sínu fyrsta barni og verður ekkert með Val í sumar.

Hún og unnusti hennar, Agnar Þór Hilmarsson, birtu „+1" færslu á Instagram í dag.

Rakel er vinstri bakvörður, fædd 1998, sem uppalin er hjá KA og varð Íslandsmeistari með Þór/KA áður en hún hélt í atvinnumennsku. Hún lék í Svíþjóð með Linköping 2019 og Uppsala 2020 áður en hún samdi á Hlíðarenda hvar hún hefur verið síðan.

Hún á að baki sjö A-landsleiki og 24 leiki fyrir yngri landsliðin. Hjá Val hefur hún unnið Íslands- og bikarmeistaratitla.



Slapp
banner
banner