Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 17:00
Fótbolti.net
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta á tveimur seðlum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sá fáheyrði atburður átti sér stað hjá Íslenskum getraunum um síðustu helgi að sami tippari var með 13 rétta bæði á Enska getraunaseðlinum sem spilaður er á laugardögum og á Evrópuseðlinum sem spilaður er á sunnudögum.

Tipparinn, sem er tæplega níræður Vestmannaeyingur, fékk rúmar 800 þúsund krónur í sinn hlut í vinninga.

Hann notaði kerfismiða í báðum tilfellum og kostaði Enski seðillinn 8.424 krónur og Evrópuseðillinn 4.212 krónur. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi tippari fær 13 rétta en hann hefur reynst ansi glúrinn í gegnum tíðina.

Tipparinn styður við bakið á Knattspyrnufélaginu Smástund, (KFS) í Vestmannaeyjum.
Slapp
banner
banner
banner