Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 14:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjarni Aðalsteins opnaði markareikninginn í svekkjandi tapi
Mynd: Roskilde
Bjarni Aðalsteinsson lék í dag sinn fimmta leik fyrir Roskilde í dönsku C-deildinni.

Hann var í byrjunarliði liðsins gegn Næstved og skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið.

Bjarni kom Roskilde í 2-0 snemma í seinni háfleik en gestirnir í Næstved náðu að koma til baka og unnu 2-3 endurkomusigur.

Bjarni fór af velli á 80. mínútu þegar staðan var 2-2.

Bjarni gekk í raðir Roskilde í vetur frá uppeldisfélaginu KA og fékk leikheimild eftir áramót.

Í sömu deild varði Adam Ingi Benediktsson mark AB í markalausu jafntefli við Skive. Fannar Berg Gunnólfsson er þjálfari AB.

AB er á toppi C-deildarinnar þegar ein umferð er í tvískiptingu.

Roskilde situr í fjórða sæti, fjórtán stigum á eftir toppliðinu.
Slapp
banner
banner