Halldór Árnason, sem gerði Breiðablik að Íslandsmeisturum 2024, verður í sérfræðingateymi SÝN Sport í þættinum Stúkan þar sem umferðin í Bestu deildinni er gerð upp. Guðmundur Benediktsson greindi frá þessu í þættinum Besta spjallið sem kom út hér á Fótbolti.net.
Kjartan Atli Kjartansson verður þáttarstjórnandi Stúkunnar í sumar og Gummi Ben stýrir Bestu deildar Zone-i þar sem skipt verður milli valla og sýnt það helsta þegar margir leikir eru í gangi á sama tíma.
Gummi verður með þá Albert Brynjar Ingason og Kjartan Henry Finnbogason með sér og verður fyrsta Zone-ið annan sunnudag. Baldur Sigurðsson og Bjarni Guðjónsson verða líka í Stúkunni. Fyrsta Stúka tímabilsins verður eftir leik Fram og ÍA annan sunnudag.

Halldór var látinn fara frá Breiðabliki seint á síðasta tímabili og er sem stendur ekki í neinu þjálfarastarfi.
Hægt er að hlusta og horfa á Besta spjallið hér að neðan.