Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 04. september 2019 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
El Hadji Diouf: Mane að feta í mín fótspor
Mane hefur gert 19 mörk í 66 landsleikjum. Hann er 27 ára.
Mane hefur gert 19 mörk í 66 landsleikjum. Hann er 27 ára.
Mynd: Getty Images
El Hadji Diouf, fyrrum sóknarmaður Liverpool, er þekktur fyrir umdeildar skoðanir og fyrir að láta allt flakka af og til í fjölmiðlum.

Nú síðast var Diouf, sem skoraði 24 mörk í 70 landsleikjum fyrir Senegal, spurður út í samlanda sinn Sadio Mane sem er lykilmaður í sterkasta liði Liverpool í langan tíma.

„Mane er að feta í mín fótspor. Hann er að standa sig ótrúlega vel, hann er frábær sendiherra fyrir Senegal. Hann er frábær náungi, hógvær, örlátur og alltaf til staðar fyrir annað fólk. Við eigum í mjög góðu sambandi," sagði Diouf.

„Hvert sem hann fer þá segir hann að fyrirmyndir sínar séu Maradona, Zidane .... og El Hadji Diouf.

„Hann og Mo (Salah) eru frábærir saman, þeir þurfa hvorn annan. Salah er kannski aðeins áhrifaríkari fyrir framan markið en það er vegna þess að Mane skilar inn meiri varnarvinnu."

Athugasemdir
banner
banner