Liverpool hafði betur gegn Leicester í dag á Anfield, 2-1. Þar kom sigurmarkið í uppbótartíma.
Sadio Mane kom Liverpool yfir í fyrri hálfleik eftir flottan sprett. James Maddison jafnaði svo metin fyrir Leicester þegar tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Liverpool fékk vítaspyrnu í uppbótartíma þegar brotið var á Sadio Mane, James Milner fór og punktinn og skoraði. Hann var valinn maður leiksins hjá Sky Sports.
Einkunnir Liverpool: Adrian (7), Alexander-Arnold (7), Lovren (7), van Dijk (7), Robertson (7), Wijnaldum (7), Milner (9), Fabinho (7), Salah (5), Firmino (6), Mane (7).
Varamenn: Origi (6), Henderson (6).
Einkunnir Leicester: Schmeichel (7), Pereira (7), Evans (7), Soyuncu (8), Chilwell (7), Tielemans (7), Ndidi (7), Praet (7), Barnes (6), Vardy (6), Maddison (7).
Varamenn: Albrighton (6), Perez (7).
Maður leiksins: James Milner.
Athugasemdir