Heimild: KSÍ á YouTube
Oliver Sigurjónsson, fyrirliði U21 árs landsliðsins og leikmaður Breiðabliks, spilaði allan leikinn í 2-0 tapi gegn Frökkum í undankeppni EM í dag.
Corentin Tolisso gerði bæði mörk Frakka eftir stoðsendingar frá Adrien Rabiot, en íslensku strákarnir eiga enn góða möguleika á að vinna riðilinn takist þeim að leggja Skota að velli á Íslandi í næsta mánuði.

„Þeir voru bara miklu betri, þeir yfirspiluðu okkur, voru kvikari og sterkari og mun betra liðið í dag. Svona er þetta, við eigum tvo leiki eftir og þurfum að klára þá til að komast áfram," sagði Oliver svekktur að leikslokum.
„Við þurfum bara að læra af þessu, þetta eru góðir fótboltamenn og það er erfitt að koma til baka þegar svona gæjar eru að spila vel.
„Við erum í bullandi séns, við höfum bara eitt markmið og menn ætla núna að undirbúa sig fyrir næstu tvo leiki. Það þýðir ekkert að vera að pæla of mikið í þessum leik í dag."