Tólfan hitar upp fyrir landsleikinn gegn Finnum á Ölveri eins og hún gerir fyrir alla landsleiki. Heimir Hallgrímsson mun kíkja á hópinn fyrir leik.
Fótbolti.net kom við á Ölveri áðan og hitti Svenna í Tólfunni.
Stóra spurningin var: Er Víkingaklappið orðið þreytt?
Þá sagði Svenni frá fótboltaleik sem fram fór í gær en stuðningsmannasveit íslenska landsliðsins mætti þá stuðningsmönnum Finna í fótboltaleik. Viðtalið er í sjónvarpinu hér að ofan.






















