Næstu þrír leikir ráða framtíð Amorim - Glasner, Southgate, Silva og Iraola orðaðir við Man Utd - Liverpool horfir til Araujo
   sun 08. mars 2020 07:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Möguleiki að Liverpool vinni titilinn fyrir næsta leik sinn
Liverpool krækti í gær i þrjú stig gegn Bournemouth í gær eftir að hafa lent 0-1 undir. Sadio Mane og Mo Salah sáu um að skora mörkin og hélt Liverpool frábæru gengi sínu á heimavelli áfram.

Staðan í deildinni er þannig að Liverpool gæti mögulega orðið meistari áður en liðið mætir Everton á mánudaginn eftir rúma viku.

Það er næsti deildarleikur Liverpool en þangað til leikur Manchester City, liðið í öðru sæti, þrjá leiki í deildinni.

Tapi City öllum þremur leikjunum sínum þangað til Liverpool spilar gegn Everton (leikir gegn Burnley, Manchester United og Arsenal) þá er Liverpool öruggt með enska meistaratitilinn.

Liverpool yrði þá með 25 stiga forskot og einungis 24 stig í pottinum fyrir City-liðið.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 4 4 0 0 9 4 +5 12
2 Arsenal 4 3 0 1 9 1 +8 9
3 Tottenham 4 3 0 1 8 1 +7 9
4 Bournemouth 4 3 0 1 6 5 +1 9
5 Chelsea 4 2 2 0 9 3 +6 8
6 Everton 4 2 1 1 5 3 +2 7
7 Sunderland 4 2 1 1 5 3 +2 7
8 Man City 4 2 0 2 8 4 +4 6
9 Crystal Palace 4 1 3 0 4 1 +3 6
10 Newcastle 4 1 2 1 3 3 0 5
11 Fulham 4 1 2 1 3 4 -1 5
12 Brentford 4 1 1 2 5 7 -2 4
13 Brighton 4 1 1 2 4 6 -2 4
14 Man Utd 4 1 1 2 4 7 -3 4
15 Nott. Forest 4 1 1 2 4 8 -4 4
16 Leeds 4 1 1 2 1 6 -5 4
17 Burnley 4 1 0 3 4 7 -3 3
18 West Ham 4 1 0 3 4 11 -7 3
19 Aston Villa 4 0 2 2 0 4 -4 2
20 Wolves 4 0 0 4 2 9 -7 0
Athugasemdir