Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 15:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nökkvi Þeyr opnaði markareikninginn - Kristian á skotskónum
Mynd: Telstar
Mynd: EPA
Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Telstar í hollensku deildinni þegar liðið vann öruggan sigur á Sittard.

Nökkvi er á láni frá Sparta Rotterdam en hann opnaði markareikninginn sinn í 4-1 sigri. Hann skoraði annað mark liðsins eftir aðeins sjö mínútna leik.

Þetta var annar sigur Telstar í röð en liðið er í 16. sæti með 24 stig eftir 26 umferðir, liðið er tveimur stigum frá öruggu sæti.

Þá var Kristian Hlynsson á skotskónum í 4-1 sigri Twente gegn Go Ahead Eagles. Hann skoraði þriðja mark liðsins snemma í seinni hálfleik. Alfons Sampsted var tekinn af velli hjá Go Ahead í hálfleik en þá var staðan 2-0 Twente í vil. Stefán Ingi Sigurðarson kom inn á 71. mínútu.

Twente fór upp fyrir Ajax í 3. sæti deildarinnar með 44 stig en Go Ahead Eagles er í 12. sæti með 29 stig.

Júlíus Magnússon var í byrjunarliði Elfsborg sem tapaði 2-1 gegn Sirius í lokaumferðinni í riðlakeppni sænska bikarsins. Þetta tap þýðir að liðið er úr leik.

Mikael Neville Anderson var ekki með Djurgarden þegar liðið vann Brommapojkarna 2-0. Hlynur Freyr Karlsson var ekki með Brommapojkarna. Djurgarden er komið áfram í átta liða úrslit.

Stefán Teitur Þórðarson spilaði 80 mínútur þegar Hannover tapaði 2-1 gegn Greuther Furth í næst efstu deild í Þýskalandi. Brynjar Ingi Bjarnason var ónotaður varamaður hjá Greuther Furth. Greuther Furth er í 16. sæti með 26 stig en Hannover er í 5. sæti með 45 stig.

Andri Fannar Baldursson var í byrjunarliði Kasimpasa sem gerði 1-1 jafntefli gegn Konyaspor í tyrknesku deildinni. Kasimpasa ere í 16. sæti með 21 stig, stigi frá öruggu sæti.

Jón Dagur Þorsteinsson skoraði úr vítaspyrnu þegar Brann vann Tromsdalen 3-2 eftir framlengingu í 16-liða úrslitum norska bikarsins.
Athugasemdir
banner